Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1400176694.35

    Hagnýt upplýsingatækni á starfsbraut
    UPPD1US05
    1
    upplýsingatækni dreifmenntar
    Hagnýt upplýsingatækni á starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingatækni. Lögð er áhersla á að nemendur læri á þau verkfæri sem notuð eru í kennslu, læri að skipuleggja sig í námi og læri að nýta sér internetið til gagnaöflunar. Nemendur fá þjálfun í algengustu verkfærum, svo sem ritvinnslu, tölvupósti og töflureikni, meðferð heimilda, geymslu gagna, myndbandsgerð og fleira. Einnig verður farið í samskiptareglur á internetinu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • verkfærum sem nýtast í námi
    • internetinu og notkun þess
    • tölvupósti
    • heimildanotkun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota netið til upplýsingaöflunar
    • nota tölvupóst til að vera í samskiptum við vini og annað fólk
    • halda utan um gögn og skrár á skipulagðan hátt
    • nota ritvinnsluforrit og helstu aðgerðir til að búa til texta
    • búa til margmiðlunarverkefni svo sem myndbönd og hljóðskrár
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera óhræddur við að prófa sig áfram og læra meira á tölvur ...sem er metið með... umræðum og virkni í tímum
    • geta unnið sjálfstætt og óstuddur í tölvum ...sem er metið með... umræðum og virkni í tímum
    • halda utanum gögn og verkefni ...sem er metið með... heimaverkefnum og virkni í tímum
    • nota tölvur við lausn verkefna með opnum og jákvæðum huga ...sem er metið með... virkni í tímum, umræðum og heimaverkefnum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið vel.