Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401104010.93

    Stærðfræði 2 á starfsbraut
    STÆR1SJ05
    16
    stærðfræði
    Stærðfræði 2 á starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í talnameðferð og talnaskilningi og læri að beita skipulögðum vinnubrögðum við úrlausn verkefna. Farið verður í neikvæðar tölur, tugabrot og almenn brot, helstu reikniaðgerðir, notkun töflureiknis, lengdar og þyngdarmælingar og notkun metrakerfisins, hnitakerfi og hnit punkta. Lögð verður áhersla á verkelga kennslu þar sem nemendur vinna með mælingar og skráningu.
    Stærðfræði 1 á starfsbraut
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • talnamengjum, talnameðferð, almennum brotum og tugabrotum
    • metrakerfinu og samhenginu milli mm, cm, m og km
    • samhenginu milli kg, g, og mg
    • hnitum punkta í tvívíðu hnitakerfi
    • framsetningu gagna á myndrænu formi
    • flatarmáli ferhyrnings, þríhyrnings og hrings
    • rúmmáli kassalaga hluta
    • meðaltali
    • einföldum prósentu reikningi
    • stórum tölum af stærðargráðunni hundrað þúsund og milljón
    • tíma, tímabili, og klukku
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og beita samlagningu, deilingu og margfeldi á neikvæðar og jákvæðar tölur
    • breyta milli tugabrota og almennra brota og deilanleika með lágum tölum
    • setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
    • finna hnit punkta í tvívíðu hnitakerfi og merkja inn punta með ákveðin (x,y) hnit
    • mæla fjarlægðir með málbandi og reglustiku og skrá niðurstöður í km, m, cm og mm
    • mæla rúmmál kassalaga hluta með málbandi og skrá niðurstöður
    • ská endurteknar mælingar skipulega niður á blað og í töflureikni
    • mæla þyngd hluta og skrá niðurstöður í kílógrömmum, grömmum og milligrömmum
    • leggja saman og draga frá verð á hlutum og finna út heildarkostnað og afgang
    • finna hversu mörg prósent hluti er af heild
    • nota klukku og leysa dæmi eins og að finna út hversu langur tími líður frá klukkan 14:10 til 15:20
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt ...sem er metið með... umræðum í tímum og verkefnum
    • leysa stærðfræðileg verkefni sem er metið með heimaverkefnum og virkni í tímum takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga ...sem er metið með... virkni í tímum, umræðum og heimaverkefnum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.