Áfanginn er verklegur og fer námið fram á hinum ýmsu vinnustöðum í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Vinnan á starfsnámsstað er skipulögð í samráði við fulltrúa vinnustaðar. Starfsnámstímabilið stendur yfir alla önnina og er viðvera nemenda á starfsnámsstað einstaklingsbundin. Umsjónarmaður starfsbrautar hefur umsjón með starfsnáminu en stefnt er að því að nemendur vinni undir leiðsögn starfsmanns á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á stundvísi, vandvirkni, sjálfstæði, samviskusemi, heiðarleika og að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta máli, t.d. áhugamál
hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta tjáð sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
geta beitt skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
geta greint á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
geta að hagnýtt sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi. Hann á að geta sýnt fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi og á að hafa skilning á eigin getu
geta miðlað þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýnt þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að tjá hugmyndir og skoðanir
meta eigið vinnuframlag
90% Símat sem byggir á frammistöðu nemandans á starfsnámsstað og á vinnusvæði í skóla. Tekið er mið af eftirfarandi þáttum: samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði, vinnusemi og vandvirkni. Matið gerir fulltrúi starfsnámsstaðar og/eða starfsnámskennari MTR.
10% Verkefni og/eða dagbók.