Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401110691.45

    Starfsnám á vinnustað 6
    STAR1SF04
    6
    starfsnám
    Starfsnám á vinnustað 6
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Áfanginn er verklegur og fer námið fram á hinum ýmsu vinnustöðum í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Vinnan á starfsnámsstað er skipulögð í samráði við fulltrúa vinnustaðar. Starfsnámstímabilið stendur yfir alla önnina og er viðvera nemenda á starfsnámsstað einstaklingsbundin. Umsjónarmaður starfsbrautar hefur umsjón með starfsnáminu en stefnt er að því að nemendur vinni undir leiðsögn starfsmanns á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á stundvísi, vandvirkni, sjálfstæði, samviskusemi, heiðarleika og að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.
    Starfsnám á vinnustað 5
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
    • því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
    • hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta máli, t.d. áhugamál
    • hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta tjáð sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
    • geta beitt skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
    • hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
    • geta greint á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
    • geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
    • geta að hagnýtt sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi. Hann á að geta sýnt fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi og á að hafa skilning á eigin getu
    • geta miðlað þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýnt þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að tjá hugmyndir og skoðanir
    • meta eigið vinnuframlag
    90% Símat sem byggir á frammistöðu nemandans á starfsnámsstað og á vinnusvæði í skóla. Tekið er mið af eftirfarandi þáttum: samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði, vinnusemi og vandvirkni. Matið gerir fulltrúi starfsnámsstaðar og/eða starfsnámskennari MTR. 10% Verkefni og/eða dagbók.