Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401116268.69

    Íslenska 5 á starfsbraut
    ÍSLE1ÍE05
    17
    íslenska
    Íslenska 5 á starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að auka markvisst orðaforða nemenda og þjálfa lestrarfærni með því að lesa ýmiskonar rit, eyðublöð og gögn sem nemendur koma til með að nota í nánustu framtíð. Lögð verður áhersla á munnlega tjáningu þar sem nemendur taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína til umræðuefna og komast að niðurstöðu. Unnið verður áfram með ritun ýmiskonar texta og reynt að virkja ímyndunarafl nemenda með sögu- og ævintýragerð af ýmsu tagi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðfæri sem notað er t.d. í atvinnuumsóknum, skattaskýrslu, leiðbeiningum ýmiskonar o.fl.
    • mikilvægi lestrar
    • mikilvægi þess að geta tjáð sig skýrt og gera grein fyrir skoðunum sínum
    • ritun mismunandi texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi
    • að lesa mismunandi texta sér til gagns
    • að tjá skoðanir sínar og geta rökrætt
    • ritun mismunandi texta við sitt hæfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa sér til gagns ýmsa texta, leiðbeiningar og eyðublöð
    • lesa sér til dægrastyttingar
    • tjá skoðanir sínar og geta komist að niðurstöðu í rökræðum ...sem er metið með... frammistöðu í kennslustundum
    • virkja ímyndunarafl sitt og getað rita einfalda texta og sögur ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.