Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Titill
Lýðheilsa 4 á starfsbraut
Viðfangsefni
Lýðheilsa 4 á starfsbraut
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla
Lýsing
Kennslan fer að mestu fram inni í íþróttasal en einnig í ræktinni og svo þegar nær dregur vori verða kennslustundirnar einnig utandyra. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nauðsyn þess að hreyfa sig reglulega
heilbrigðum lífsstíl sem inniheldur hreyfingu
að bera ábygð á heilsu sinni
skipulagningu æfingar (upphitun, aðalhluti, niðurlag)
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja æfingatíma sinn (upphitun, aðalhluti og niðurlag)
iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
setja sér raunhæf hreyfimarkmið
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Námsmat
Áfanginn er verklegur og nemendur þurfa að standast mætingarkröfur hans.