Í áfanganum er stefnt að því að gera nemendur meðvitaða um fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið er í laun og frádrátt og hvert hann fer, rekstur heimilis og bíls, notkun greiðslukorta, gengi og gjaldeyri og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Einnig verður farið í heimilisbókhald og mikilvægi þess að halda utan um tekjur og gjöld.
Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar í áfanganum svo sem leikir, umræður og verkefnavinna, bæði einstaklings- og hópa. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum fjármálum daglegs lífs
lestri launaseðla og annarra fjármálatengdra skjala
tilgangi skatta og annars frádráttar
rekstri heimilis og bifreiðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna gróflega útborgun launa eftir skatt
gera sér grein fyrir daglegum kostnaði, t.d. fæði og húsnæði)
leita sér upplýsinga sem aðstoðar þá við nauðsynlega útreikninga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir mikilvægi peninga
skilja tilgang skatta og gjalda og hvernig þeir nýtast okkur
skilja mikilvægi þess að tekjur séu hærri en gjöld
tileinki sér ábyrgð á eigin fjármálum og átti sig á að tekjur og gjöld verða að standast á ...sem er metið með... umræðum og verkefnum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.