Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401898160.14

    Félagsfræði
    FÉLA1AL05
    3
    félagsfræði
    af almenn félagsfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um gagnvirk áhrif einstaklings og samfélags. Nemendur kynnast því hvernig félagsfræðin skoðar samband einstaklings og samfélags með hugtökunum menning, samfélag, félagsmótun, fjölskylda og stjórnmál. Námið í áfanganum felst í því að nemandinn tileinkar sér helstu hugtök félagfræðinnar svo sem gildi, viðmið, félagslegt taumhald, hnattvæðing, fjölmenning, hlutverk, staða, sjálfsmynd og notar þau til að greina umhverfi sitt nær og fjær. Fjallað er um þróun íslensks samfélags og megineinkennum þess lýst. Sérstök áhersla er lögð á að fjalla um félagsmótun einstaklingsins almennt, málefni fjölskyldunnar, kynhlutverk og mikilvægi stjórnmála í síbreytilegum heimi. Þá er fjallað að hluta um félagsfræðina sem fræðigrein og námsgrein og helstu frumkvöðlar hennar eru kynntir.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum félagsfræðinnar
    • tengslum gilda og viðmiða og með hvaða hætti þau tengjast almennu siðferði
    • ólíkum félagsmótunaraðilum sem hafa áhrif á mótun einstaklings og umhverfis
    • mismunandi fjölskyldugerðum og hjúskaparháttum
    • uppbyggingu íslensks stjórnkerfis m.t.t. þrískiptingu ríkisvalds, þingræðis og lýðræðis
    • mismunandi hugmyndafræði stjórnmála
    • þróun félagsfræðinnar og helstu frumkvöðlum hennar
    • gagnsemi félagsfræðilegrar umræðu um samfélagsleg málefni líðandi stundar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér fjölbreytilegra upplýsinga um mismunandi menningarsamfélög
    • útskýra helstu áhrif sem félagsmótunaraðilar hafa á börn og unglinga
    • vinna með upplýsingar um mismunandi fjölskyldugerðir og hjúskaparhætti á hagnýtan og fjölbreytilegan hátt
    • útskýra skilmerkilega uppbyggingu og boðleiðir í íslenska stjórnkerfinu
    • beita samanburði á mismunandi hugmyndafræði stjórnmála
    • fjalla skilmerkilega um samfélagsleg málefni bæði munnlega og skriflega
    • vega og meta upplýsingar með gagnrýnu hugarfari og að greina á milli rökræðu og kappræðu um samfélagsleg málefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja mat á upplýsingar um menningar- og samfélagstengd málefni líðandi stundar
    • leggja mat á fordóma gagnvart tilteknum menningar- og þjóðfélagshópum og greina mögulegar ástæður þessara fordóma
    • tengja félagsfræðileg hugtök við daglegt líf og sjá notagildi þeira
    • leggja mat á eigin félagsmótun og efla eigin sjálfsmynd
    • tileinka sér viðhorf sem einkennast af almennum jafnréttissjónarmiðum og taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
    • viða að sér efni og skrifa heimildaritgerð um afmarkað viðfangsefni
    • taka þátt í rökræðum um samfélagsleg málefni
    • takast á við frekara nám í félagsfræði og öðrum samfélagsgreinum
    Leitast verður við að beita fjölbreyttum aðferðum við kennslu og námsmat. Unnið verður í stærri og smærri hópum að afmörkuðum verkefnum og nemendur kynna reglulega niðurstöður sínar fyrir félögum sínum. Leiðsagnarmati verður beitt markvisst og nemendur prófaðir úr ýmsum þáttum námsefnisins.