Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1403097785.58

    Verknám á sjúkrahúsi
    VINN2LS08
    1
    Verknám
    Lyflækningahjúkrun, skurðlækningahjúkrun
    Samþykkt af skóla
    2
    8
    Vinnustaðanámið fer fram á almennri deild á sjúkrahúsi s.s. skurð- og lyflækningadeildum. Verklegur hluti áfangans er 15 átta klukkustunda vaktir á önn. Nemendur vinna jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða og öðlast þjálfun í þeim. Í upphafi tímabils setur nemandi sér persónuleg og fagleg markmið um vinnustaðanámið. Á meðan á vinnustaðanámi stendur skal nemandi fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
    HJÚK2HM05,HJÚK2TV05 eða samhliða námi í þessum áföngum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun sjúklinga á sjúkrahúsum
    • viðurkenndum reglum um smitgát og sýkingavarnir
    • fylgikvillum rúmlegu
    • faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
    • mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklings
    • mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
    • skráningu hjúkrunar
    • mikilvægi þagnarskyldu
    • réttindum sjúklinga samkvæmt lögum
    • undirbúningi sjúklings fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
    • mikilvægi forgangsröðunar í hjúkrunarstörfum
    • sýnatökum og meðferð sýna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta sjálfsbjargargetu og þarfir sjúklingins í athöfnum daglegs lífs
    • vinna eftir reglum um smitgát og sýnatökur
    • sýna sjúklingi faglega umhyggju í hjúkrun
    • taka þátt í að mæla og skrá algengar athuganir hjá sjúklingum
    • nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
    • taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
    • forgangsraða eigin störfum
    • vinna samkvæmt hjúkrunarferli
    • útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi sjúklinga
    • taka þátt í hjúkrun sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og geta rökstutt hana
    • geta tekið þátt í hjúkrun sjúklingi fyrir og eftir aðgerð og rannsóknir
    • virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og trúnaðar við sjúkling
    • sýna hæfni í samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk
    • sýna faglega umhyggju í hjúkrun
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda í áfanganum er metin með reglubundnum hætti ásamt því að skrá í ferilbók og gátlista. Til grundvallar matinu er einkum horft til sjálfstæðis í vinnubrögðum, hæfni í hjúkrunarstörfum og samskipta við sjúklinga og samstarfsfólk. Nemendur gera verkefni sem kennari leggur fyrir og tengist viðfangsefnum deildar og vinnustaðanámsins/verknáms. Að öðru leyti er námsmatið samkvæmt skólanámskrá hvers skóla.