Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1403529444.22

    Sjávarútvegur
    SJÁV1SÚ02
    2
    Sjávarútvegsfræði
    Sjávarútvegur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum munu nemendur kynnast helstu nytjategundum við Ísland, fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum er tengjast sjávarútvegi, ferðaþjónustu í sjávarútvegi, fá innsýn í sögu sjávarútvegs við Ísland, nýsköpun, tækni og verðmætum. Nemendur fara í heimsóknir til fyrirtækja, kryfja lífverur, heimsækja söfn, fá fræðslu frá fagaðilum og stofnunum og fara á veiðar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • byggingu fiska
    • fjölbreyttum störfum í sjávarútvegi
    • mikilvægi sjávarútvegs fyrir Íslendinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
    • tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefni áfangans og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun
    • tjá sig um einstaka efnisþætti
    • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrg á eigin námi og vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    Á námskeiðinu eru engin verkefni heldur þurfa nemendur að mæta í þá þætti sem þeir velja og þeir verða að vera virkir þátttakendur.