Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1407585560.83

    Stærðfræði fyrir sláturiðn
    STÆR2AL03
    34
    stærðfræði
    algebra
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á tölur og talnareikning, vaxtareikning skiptireikning, prósentur og veldi. Nemendur læra að gera einfaldar kostnaðaráætlanir, þjálfast í að leita leiða til að minnka kostnað og gera launaútreikninga. Nemendur læri að nota töflureikninn Excel og önnur forrit við útreikninga.
    Grunnskólapróf eða ígildi þess. Raunfærnimat.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þekki vægi rýrnunar í kostnaði fyrirtækja.
    • Hvernig kostnaðarverð, álagning, virðisaukaskattur og söluverð er reiknað.
    • Hvernig hægt er að reikna út og áætla helstu þætti kostnaðar.
    • Hvernig hægt er að reikna út helstu þætti í einföldum viðskiptaáætlunum.
    • Notkun töflureiknis við gerð áætlana og útreikninga.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna kostnaðarverð, álagningu, virðisaukaskatt og söluverð.
    • Áætla og reikna út helstu þætti kostnaðar.
    • Breyta á milli eininga við útreikninga.
    • Nota töflureikni og fleiri forrit við gerð áætlana og við útreikninga.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Beita trú á eigin getu við úrlausn viðfangsefna og vinnubrögðum stærðfræðinnar við raunverulegar aðstæður s.s við launaútreikninga og að reikna út rýrnun.
    • Beita fræðilegum vinnubrögðum í stærðfræði við áframhaldandi nám og störf.