Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1407589235.86

    Gæðakerfi
    GÆDA1SL03
    1
    Gæðakerfi (HACCP/GÁMES)
    Gæðakerfi, HACCP/GÁMES, rekjanleiki/Slátrun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Markmið áfangans er að efla þekkingu nemenda á grundvallaratriðum HACCP/GÁMES og innra eftirliti í sláturhúsum. Nemendur fá innsýn í innleiðingu kerfisins og hvernig unnið er samkvæmt því. Í áfanganum ásamt tengdum áfanga, vinnustaðaþjálfun öðlast nemendur þekkingu og leikni í uppsetningu og vinnu við HACCP- kerfið. Fjallað er um hugmyndafræði HACCP- kerfisins, þróun og uppbyggingu, staðla, fyrirbyggjandi aðferðir og hættugreiningar. Rekjanleiki, úttektaráætlanir, forvarnir, undirbúningur og framkvæmd úttekta t.d gerð gátlista, skoðunarbækur, niðurstöður, úrbætur og eftirfylgni er rætt.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • HACCP/GÁMES gæðastjórnunarkerfinu, hugmyndafræði þess, þróun og uppbyggingu.
    • Hvernig HACCP hópur er settur saman.
    • Hættugreiningu s.s uppsetningu og notkun gæðahandbókar, gátlista, verklagsreglna, greiningartré, sýnatökur o.fl.
    • Mikilvægi fræðslu og hvatningar til annars starfsfólks varðandi notkun, viðhald og eftirfylgni á HACCP/GÁMES.
    • Vottun og úttekt á HACCP- kerfinu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Byggja upp HACCP- kerfi í sláturhúsi, við heimavinnslu og annarsstaðar þar sem sláturtengd störf eiga sér stað.
    • Taka tillit til íslenskra aðstæðna í áhættugreiningu.
    • Deila þekkingu sinni á eðli og tilgangi kerfisins til annars starfsfólks s.s í sláturhúsum og við vinnslu beint fá býli.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka ábyrgð á sláturtengdum verkum sem sérhæfður starfskraftur. ...sem er metið með... Vinnustaðanámi
    • Skilja eðli gæðakerfa og vera meðvitaður um tilgang þeirra og nauðsyn. ...sem er metið með... Prófi og vinnustaðanámi
    Símat sem felur í sér smærri hlutapróf og verkefni s.s að nemandi setji upp HACCP kerfi, innleiði og meti