Í áfanganum, sem ætlaður er nemendum af öllum námsbrautum, er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðri um þátt einstaklingsins í umhverfisvernd. Nemendur kynnast aðferðum til að áætla áhrif breyttra lifnaðarhátta á umhverfið og leitast er við að auka ábyrgðartilfinningu einstaklingsins gagnvart bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfisins á hnattvísu.
Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum. Fjallað verður um mengun, veðurfarsbreytingar, dýr í útrýmingarhættu, og auðlindaþurrð. Kynnt verða hugtökin „burðargeta“ og „sjálfbærni“, og hugtökin tengd fjölgun mannkyns og aðstæðum á jörðinni. Enn fremur verður fjallað um sjálfbæra auðlindanýtingu.
Í áfanganum er leitast við að auka hæfni nemenda í að túlka gögn sem tengjast umhverfismálum á gagnrýninn hátt. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með gögn sem tengjast umhverfismálum.
Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru. Fjallað verður um muninn á hagrænum og fagurfræðilegum verðmætum og nemendur hvattir til að velta því fyrir sér hvað hafi áhrif á verðmætamat hvers og eins þegar kemur að því að meta verðmæti í náttúrunni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta
Hugtökunum burðargeta (e. carrying capacity) og sjálfbærni (e. sustainability) og hvernig þessi hugtök tengjast nýtingu náttúruauðlinda og fjölgun mannkyns
Hlýnun jarðar; orsökum, afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
Muninum á hagfræðilegu og fagurfræðilegu verðmætamati í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Endurnýta endurnýtanlegan efnivið og endurvinna sorp í þeim tilgangi að minnka sorp sem þarf að farga
Meta áhrif hversdagslegra athafna á umhverfið, m.a. með því að nýta sér hugtakið „vistspor“ (e. ecological footprint)
Fjalla um umhverfismál út frá hagfræðilegum og fagurfræðilegum sjónarmiðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Minnka ágang á náttúruauðlindir með vistvænni lifnaðarháttum
Minnka magn urðaðs sorps með því að endurnýta og endurvinna það sem hægt er
Túlka á gagnrýninn hátt upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
Vera virkur þátttakandi í umræðu um umhverfismál.
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.