Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1409064206.05

    Geðsjúkdómar og meðferð
    SÁLF2GS05
    12
    sálfræði
    geðsálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um geðraskanir og algengustu flokka geðraskana, t.d. kvíðaraskanir, lyndisraskanir (þunglyndi og geðhvarfasýki), geðklofa, átraskanir (lystarstol og lotugræðgi), áfengissýki og lyfjafíkn. Farið er í helstu kenningar um orsakir geðraskana. Þá eru tekin fyrir helstu meðferðarform og hvað það merkir að vera andlega heilbrigður eða eðlilegur („normal“). Kynntar verða aðferðir og kenningar sem stuðla að andlegu heilbrigði. Nemendur vinna verkefni eins og hugsanaskráningu og taka viðtal við einstaklinga sem hafa reynslu af geðröskunum. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum, kenningum og vinnubrögðum sálfræðinnar og geti beitt þeim, bæði almennt og á afmörkuð viðfangsefni.
    SÁLF2IS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtakinu heilbrigði og hvað felist í andlegu heilbrigði
    • helstu flokkum og undirflokkum geðraskana
    • mikilvægum meðferðarúrræðum
    • helstu kenningum um orsakir geðraskana.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fjalla um og bera saman sálfræðileg hugtök og kenningar
    • greina geðraskanir og viðeigandi meðferðarúrræði í afmörkuðum tilfellum
    • nota heimildir á viðurkenndan hátt
    • nota ólík miðlunarform til að fjalla um og koma á framfæri sálfræðilegum viðfangsefnum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
    • geta tekið þátt í umræðum um sálfræðileg málefni og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun
    • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
    • geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum
    • tileinka sér jákvæð og fordómalaus viðhorf
    • geti beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á námi og unnið í samvinnu við aðra
    • geti hagnýtt heimildir til að afla sér upplýsinga um sálfræðileg viðfangsefni.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.