Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410294356.42

    Enska með áherslu á kvikmyndir
    ENSK1KV04
    15
    enska
    kvikmyndaáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum kvikmyndir af ýmsu tagi. Áhersla verður á að nemendur horfi á kvikmyndir og vinni jafnt og þétt upp úr þeim ýmis verkefni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hver boðskapurinn í viðeigandi kvikmynd er. Nemendur taka niður orð og þýða eftir hvert áhorf, vinna ýmis verkefni upp úr söguþræðinum og setja íslenskan texta við enskar myndir.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Söguþræði og innhaldi þeirrar kvikmyndar sem tekin er fyrir hverju sinni
    • Að oft má tengja saman áhugamál og nám
    • Sköpun í formi leik,- tón- og sönglistar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að átta sig á atburðarrás kvikmynda
    • Virða mismunandi kvikmyndasmekk
    • Átta sig á mismunandi formi kvikmynda
    • Taka þátt í umræðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í umræðum um kvikmyndir
    • Efla orðaforða sinn
    • Átta sig á að margar kvikmyndir hafa ákveðinn boðskap
    • Að spyrja spurninga og hlusta á aðra
    • Að láta skoðanir sínar í ljós
    • Átta sig á kostum þess að vera vel læs á enska tungu
    Leiðsagnarmat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.