Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410294723.29

    Enska með áherslu á tölvuleiki
    ENSK1TÖ04
    19
    enska
    Tölvuleikir
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölvuleiki sem kennarinn velur í samráði við nemendur og aðra fagaðila sem þekkja vel til. Nemendur skiptast á að spila leikina en allir fylgjast með og öll ný orð og hugtök eru skráð niður og lögð á minnið. Kennarinn velur leikina með það í huga að nemendurnir þurfi bæði að nýta sér ritun og lestur til þess að komast áfram í leiknum og samhliða eflir nemandinn ensku kunnáttu sína.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þeim orðaforða sem kemur fram í tölvuleikjunum
    • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
    • Kostum þess að vera vel læs á enska tungu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Fylgja fyrirmælum sem koma fram í tölvuleikjum
    • Nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
    • Taka þátt í umræðum
    • Lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin hæfni í tölvuleikum
    • Efla eigið tölvulæsi
    • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í tölvuleikjum
    • Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
    • Lesa í leik- og samskiptareglur
    Leiðsagnarmat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.