Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410296181.18

    Upplýsingatækni með áherslu á tölvupóstsamskipti
    UPPT1TS04
    5
    upplýsingatækni
    Tölvupóstsamskipti
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að búa til tölvunetfang og að senda tölvupóst. Farið verður í ritun á ýmsum tegundum af tölvupósti og muninum á formlegum og óformlegum texta í tölvupóstsamskiptum. Skoðaðar verða ýmsar samskiptareglur tengdar tölvupóstsamskiptum t.d. hvað hástafir í texta geta þýtt og greinarmerki. Einnig er komið inn á hvernig tölvupósti við ættum ekki að svara og rætt um allskyns hættur sem mikilvægt er að varast.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Að tölvur eru stór hluti af lífi okkar
    • Mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum
    • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti, því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
    • Útbúa og nota sitt eigið netfang
    • Tjá sig í rituðu máli
    • Nýta sér leiðréttingarforrit þegar ritaður er tölvupóstur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Að nýta sér tölvupóst sem einn af mörgum samskiptamátum
    • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun
    • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
    Leiðsagnarmat, virkni í kennslustundum, mæting og lokaverkefni. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.