Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með Evrópulöndin þar sem rætt verður um helstu borgir og sérkenni þeirra. Fyrir áhugasama er hægt að nýta sér Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva í þeim tilgangi að nálgast viðfangsefnið út frá tónlist.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Löndum sem tilheyra Evrópu
Nöfnum höfuðborga í Evrópu
Helstu kennileitum í Evrópu
Vinsælum ferðamannastöðum í Evrópu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina á milli landa sem tilheyra Evrópu
Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
Nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Taka þátt í umræðum um Evrópulöndin
Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.