Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1411121898.66

    Skólablað
    ÍSLE2DB02
    15
    íslenska
    Skólablað
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Í áfanganum læra nemendur að safna saman upplýsingum, koma þeim saman í ritað mál og útbúa skólablað til birtingar. Nemendur semja greinar, taka viðtöl, taka myndir, taka saman upplýsingar og setja fram í grein og setja upp blað. Lögð er áhersla á þætti eins og val á umfjöllunarefni, efnistök, málfar, stíl og uppbyggingu texta.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að setja upplýsingar fram á skýran og greinagóðan hátt
    • fjölbreyttum aðferðum til að koma efni frá sér á prenti
    • úrvinnslu ganga og uppsetningu efnis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • taka saman upplýsingar t.d. myndir og texta og koma á greinagott form
    • meta málfar, stíl, uppbyggingu og efnistök í eigin texta
    • meta eigin texta og annarra á gagnrýninn hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna úr upplýsingum sem hann safnar og útbúa grein til birtingar
    • safna sama upplýsingum með ólíkum hætti, t.d. með viðtölum
    • setja fram efni á skýran hátt
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.