Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1411333817.65

    Hugmyndasaga
    SAGA3HS05(31)
    40
    saga
    Hugmyndasaga
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    31
    Í þessum áfanga er hugmyndasagan rakin frá heimspeki fornaldar til upplýsingar á nýöld. Helstu viðfangsefni áfangans eru heimspekisaga: einkum þekkingarfræði, rökfræði, trúfræði, siðfræði og stjórnmálafræði; og vísindasaga þar sem megináherslan er á fornöld og síðan endurreisn og vísindabyltingu.
    SAGA2YS05(21)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu heimspekinnar á fornöld, helstu hugmynda, kenninga og spekinga
    • þróun kristinnar trúar og áhrifum hennar allt fram á nýöld
    • sögu vísindanna, allt frá glæstum afrekum á fornöld til vísindabyltingar árnýaldar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta tengsl á milli hugmynda manna um umheiminn, trúarbragða og stjórnarfars á hverjum tíma
    • beita hugtökum um fyrirbæri sögunnar og geri sér grein fyrir gagnsemi þeirra og takmörkunum
    • koma frá sér sögulegum texta á skýran hátt
    • beita gagnrýninni hugsun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • koma söguþekkingu sinni og söguskilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti ...sem er metið með... verkefnum, kynningu, ritgerð, rökræðum
    • sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum ...sem er metið með... verkefnum, kynningu rökræðum
    • gera sér grein fyrir tengslum hugmynda og þess samfélags sem þær verða til í ...sem er metið með... verkefnum, rökræðum, prófum
    • átta sig á sameiginlegu upphafi ólíka greina s. s. heimspeki og eðlisfræði ...sem er metið með... verkefnum, kynningu, prófum
    Námsmat er leiðsagnamiðað og byggir á verkefnum af ýmsu tagi, kynningu, ritgerð og prófum