Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1411335484.43

    Yfirlitssaga 20. aldar
    SAGA3OL05(32)
    41
    saga
    20. öldin
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    32
    Valdir þættir úr sögu 19. og einkum 20. aldar verða teknir til íhugunar og gagnrýnnar skoðunar. Einkum verður fjallað um mannkynssöguna en aðstæður á Íslandi verða einnig skoðaðar í ljósi atburða í öðrum löndum. Hér er ekki um hefðbundna yfirlitssögu að ræða heldur verður leitast við að kafa dýpra í valið efni. Þeir þættir sem verða meginviðfangsefni áfangans eru: Nýlendutíminn og fyrri heimsstyrjöldin, millistríðsárin, kalda stríðið og atburðir líðandi stundar.
    SAGA2YS05(21)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýlendu- og heimsvaldastefnu stórveldanna á seinni hluta 19. aldar
    • gangi fyrri heimsstyrjaldarinnar, aðdraganda hennar og eftirmálum
    • pólitískum straumum og stefnum á millistríðsárunum, s. s. kommúnisma og nasisma
    • upphafi og þróun kalda stríðsins og helstu stríðsátökum sem þá geisuðu
    • málefnum sem eru í umræðunni á líðandi stund og geta greint sögulegar rætur þess og ferli
    • helstu venjum og reglum við smíði heimildaritgerðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina tengsl 20. aldar við samtímann
    • leita sér sögulegra upplýsinga með margvíslegum hætti
    • meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
    • koma frá sér sögulegum texta á skýran hátt
    • rita heimildaritgerð út frá helstu reglum og hefðum
    • meta liðna tíma á víðsýnan og umburðarlyndan máta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • koma söguþekkingu sinni og söguskilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti ...sem er metið með... verkefnum, ritgerð, kynningu, prófum
    • sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum ...sem er metið með... ritgerð, kynningu, prófum
    • greina atburði samtímans út frá sögulegri þróun síðustu áratuga ...sem er metið með... verkefnum, ritgerð, prófum
    Námsmat er leiðsagnarmiðað og byggist á verkefnum af ýmsu tagi, ritgerð, kynningu, prófum