Nemendur þurfa að stunda markvisst og skipulega íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara. Sérstök áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun út frá æfinga- og keppnisálagi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
hvað líkamlegt form sé og hvernig það sé þjálfað markvisst og skipulega
mikilvægi þess að æfa rétt út frá æfinga- og keppnisálagi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta líkamlegt form sitt og hvernig æfingu eigi að iðka hverju sinni út frá æfinga- og keppnisálagi
meta kosti og galla sína sem íþróttamanns í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Áfanginn er að mestu verklegur og er 90% mætingarskylda. Nemendur þurfa að skila inn upplýsingablaði í upphafi annar. Nemendur verða að stunda íþrótt sína 3-4x í viku alla önnina undir handleiðslu þjálfara.