Í áfanganum er farið yfir sögu 20. aldar. Áhersla er lögð á að nemendur fái sem skýrasta mynd af mikilvægustu atburðum, þemum og hugmyndum aldarinnar ásamt skilningi á örsökum þeirra og afleiðingum. Nemendur kynnast umdeildum málefnum nútímans út frá sögulegu samhengi þeirra og ólíkum sjónarhornum.
Inngangur að félagsvísindum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stöðu heimsmála við upphaf aldarinnar og þróun þeirra á tímabilinu
orsökum heimstyrjaldanna tveggja, framvindu þeirra og afleiðinga
kalda stríðinu, framvindu þess og afleiðinga
sögulegu samhengi mikilvægra málefna sem eru umtöluð á líðandi stundu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina stöðu heimsmála á hverjum tíma út frá sögulegu samhengi
meta gildi og áreiðanleika mismunandi heimilda
miðla sögunni á sjálfstæðan og fjölbreyttan hátt
nýta sér birtingarform sögunnar: kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internetið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afmarka söguleg málefni, geta greint meginþætti og álitamál, leita eftir mismunandi sjónarhornum, lýsa málefnum og gefa álit sitt
taka þátt í rökræðum um mikilvæg álitaefni út frá sögulegu samhengi
greina orsakir og afleiðingar helstu atburða 20. aldar
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.