Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1411477957.97

    Almenn efnafræði
    EFNA2AE05
    12
    efnafræði
    almenn efnafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið verður í oxunarhvörf og hvernig hægt er að stilla efnajöfnur með oxunartölum. Farið verður í orku í efnahvörfum er hvarfið inn eða útvermið hvarf. Inngnagur að kjarnefnafærði verður tekinn. Jafnvægislögmálið, er hvarf í jafnvægi eða ekki. Lögmál Le Châteliers verður tekið. Sýrur og basar verða skoðaðir ásamt sýrustigi.
    5 einingar í efnafræði á 2 þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • oxun/afoxun og oxunartölum og hvernig hægt er að nýta þær upplysingar til að stilla efnajöfnur
    • inn og útvermnum hvörfum, hvarfvarma og virkjunarorku hvarfanna
    • náttúrulegri geislavirkni og hvað helmingunartími efna er. Til hvers geilsavirk efni eru notuð
    • jafnvægisfastanum og hvafakvótanum og vita muninn á þeim. Þekkja mismundandi aðferðir til að breyta jafnvægisstöðunni (nota lögmál Le Châteliers)
    • hvað er sýra og hvað er basi. Þekkja muninn á sterkum og veikum sýrum og bösum
    • sýrustiginu og pH hugtakinu
    • sýru og basa títrunum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
    • finna oxunartölur og jafnvægisstilla með þeim
    • reikna út orku í efnahvörfum
    • reikna út helmingunartíma geislavirkra efna
    • finna jafnvægisfastann og hvarfakvótann
    • nota lögmál Le Châteliers
    • finna sýrustig
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum og ferlum í efnafræði
    • tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar ogþess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.