Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1411736380.49

    Íslenska 1 á starfsbraut
    ÍSLE1ÍA05
    22
    íslenska
    Íslenska 1 á starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er unnið með ýmsa grunnþætti íslenskunnar, svo sem lestur, lesskilning, ritun og tjáningu. Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í skólanum en námið fer mikið fram í gegnum tölvur. Unnið er að því að nemendur verði færir í alls kyns textavinnslu á tölvutæku formi og kynnist þeim möguleikum sem tölva og netið bjóða upp á. Nemendur lesa ýmsa texta sem birtast í miðlum á netinu og vinna með þá ásamt því að fá þjálfun í ritun og tjáningu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim möguleikum sem tölva býður upp á til meðhöndlunar texta
    • mismunandi miðlum á netinu
    • ritun og framsetning texta í tölvutæku formi
    • mikilvægi tjáningar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðferð texta á tölvutæku formi
    • að lesa mismunandi texta á netinu sér til gagns
    • ritun mismunandi texta við sitt hæfi
    • tjáningu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skila tölvuunnum verkefnum og senda rafrænt til kennara ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
    • lesa ýmsa texta á netinu s.s. fréttir og fræðigreinar ...sem er metið með... skriflegum og munnlegum verkefnum
    • rita einfalda texta, sögur og ljóð ...sem er metið með... skriflegum verkefnum
    • tjá eigin skoðanir ...sem er metið með... þátttöku í samræðum í tímum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.