Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1412181376.39

    Lífræn efnafræði
    EFNA3LR05(42)
    31
    efnafræði
    lífræn efnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    42
    Sérstaða kolefnis í lotukerfinu, svigrúmablöndun þess og tengjamöguleikar. Helstu flokkar lífrænna efna, nafngiftareglur þeirra (IUPAC kerfið) og hvarfgangur.
    EFNA2BA05(20)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim mun, sem er á ólífrænni og lífrænni efnafræði
    • Sérstöðu kolefnis í lífrænni efnafræði
    • Grundvallarbyggingaratriðum lífrænna sameinda og ísómerisma
    • Atóm- og mólikúlsvigrúmum, svigrúmablöndun og sameindalögun
    • byggingu og nafngiftum helstu flokka lífrænna efna
    • hvarfgangi helstu flokka lífrænna efna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Rita byggingarformúlur eftir IUPAC nöfnum
    • Rita byggingarformúlur eftir "common" nöfnum einfaldra lífrænna sameinda
    • Rita IUPAC nöfn lífrænna efnasambanda
    • Rita "common" nöfn einfaldra lífrænna efnasambanda
    • Spá fyrir um efnahvörf lífrænna efna út frá hvarfefnum og skilyrðum (hvatar o.fl.) þess að hvarf gerist
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • yfirfæra þekkingu sína á einföldum lífrænum efnum á flóknari, lífræn efnasambönd, svo sem sykrur, fituefni og prótein ...sem er metið með... verkefnum og prófi
    • Stunda nám í lífefnafræði ...sem er metið með... verkefnum og prófi
    • nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst, ...sem er metið með... verkefnum, þar sem reynir á innsæi
    Námsmat með áherslu á leiðsagnarmat er í höndum og á ábyrgð kennara.