Í áfanganum eru grundvallaratriði setningafræði kennd og fjallað um ýmislegt sem tengist málnotkun.Unnið með hugtök bókmenntafræðinnar, hugtök í bragfræði eru kynnt og nemendur læra að beita þeim. Nemendur lesa nútímabókmenntir, Íslendingaþætti og annað það sem stuðlar að aukinni lestrarfærni og túlkun. Þá verður unnið með norræna goðafræði. Nemendur styrkja eigin málfærni með því að flytja ræður, endursagnir og kynningar ýmsar.
Nemendur eru þjálfaðir í ritun og skrifa eina heimildarritgerð.
Nemendur hafa lokið grunnskóla með einkunnina 6 eða hærri.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum setningarfræðinnar
helstu hugtökum í ritgerðasmíð
mismunandi tegundum bókmennta og grunnhugtökum í bókmenntafræði.
helstu goðum í norrænni goðafræði og hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á faglegan og heiðarlegan hátt
nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
styrkja eigin málfærni með því að nýta sér málfræðiupplýsingar í handbókum
beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.