Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1413284273.22

    Kvikmyndasaga
    LISF2KV05
    2
    listasaga og listfræði
    Kvikmyndafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum verður farið yfir 100 ára sögu kvikmyndarinnar, þróun hennar, helstu strauma og hefðir í mismunandi löndum. Kynnt eru lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Skoðaðar verða valdar kvikmyndir sem hafa mótað hreyfimyndamiðilinn og breytt viðhorfi almennings til þeirra möguleika sem í honum búa. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Áhersla er lögð á umræður í tímum, hópverkefni og samvinnu í skriflegum verkefnum.
    LISF1LI05_1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kvikmyndafræðilegum hugtökum
    • kvikmyndasögu
    • skoðun kvikmynda
    • flokkun kvikmynda
    • gagnrýni kvikmynda
    • gerð og framleiðslu kvikmynda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa kvikmyndafræðitexta
    • endursegja og skýra kvikmyndafræðilegan texta
    • beita gagnrýnni hugsun
    • meta eigin rök og annarra
    • tjá sig og hlusta á aðra
    • tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta miðlað skoðunum og fræðilegum athugunum á skýran hátt
    • geta greint kvikmyndir á fræðilegan hátt
    • geta notað hugtök og aðferðir til að skilja og greint miðilinn betur
    • geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
    • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
    • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
    • skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.