Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415193935.82

    Byrjendaáfangi í þýsku
    ÞÝSK1ÞA05
    10
    þýska
    undirstaða tungumálsins
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er byrjendaáfangi og flokkast undir A1 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Markmiðið er að nemandi skilji algeng orð og setningar um sig og fjölskyldu sína ásamt nánasta umhverfi. Einnig að nemandi geti tekið þátt í einföldum samræðum og skrifað einfalda texta. Nemendur nota grunnbækur, lesbók og vinnubók. Einnig lesa þeir stuttar sögur og syngja. Notað er myndefni þar sem nemendur fá kynningu á landi og þjóð. Verkefni eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni. Lögð er áhersla á notkun upplýsingatækni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • almennum orðaforða í samræmi við hæfniviðmið áfangans
    • • nokkrum grundvallarþáttum málkerfisins
    • • menningu, helstu samskiptavenjum og siðum í þýskumælandi löndum
    • • uppbyggingu einfaldra texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða
    • • taka þátt í einföldum samræðum
    • • skrifa einfaldan texta um þekkt efni eða áhugasvið
    • • beita helstu reglum um málnotkun í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • • skilja meginatriði einfaldra texta
    • • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann þekkir
    • • taka þátt í samræðum við einfaldar aðstæður
    • • meta eigið vinnuframlag og stöðu
    • • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    Í lok áfangans er skriflegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.