Áhrif manna á umhverfið, svo sem eyðing búsvæða, útrýming tegunda, mengun og áhrif hennar á lífríkið og ofveiði. Nútíma aðferðir við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda ásamt aðferðum við að endurheimta röskuð búsvæði (vistheimt) kynntar. Námsferðir og/eða verklegar æfingar eftir því sem kostur er.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhrifum mannsins á umhverfi sitt, bæði staðbundnum og á heimsvísu sem og tímabundnum eða langvarandi
helstu aðferðum við að "gera við" umhverfisspjöll
hvernig halda má umhverfisáhrifum mannsins í lágmarki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
spá fyrir um umhverfisáhrif framkvæmda, svo sem af völdum mengunar eða ofveiði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rökræða umhverfisáhrif mannsins, bæði staðbundið og á heimsvísu sem og tímabundið eða langvarandi ...sem er metið með... umræðutímum og málstofum
nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst, ...sem er metið með... verkefnum, þar sem reynir á innsæi
Námsmat með áherslu á leiðsagnarmat er í höndum og á ábyrgð kennara.