Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415287271.07

    Þýska B
    ÞÝSK1ÞB05
    11
    þýska
    hlustun og ritun, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er framhaldsáfangi og flokkast undir A1 skv. evrópska tungumálarammanum. Lögð er áhersla á 4 færniþætti tungumálakennslu: hlustun, lestur, tal og ritun. Markmiðið er að nemandi skilji flóknari orðasambönd um sig og umhverfi sitt. Að nemandi geti tekið þátt í einföldum samræðum og skrifað stutta, einfalda texta. Nemendur nota grunnbækur, lesbók og vinnubók. Einnig lesa þeir stuttar sögur og syngja. Notað er myndefni þar sem nemendur fá kynningu á landi og þjóð. Verkefni eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni. Lögð er áhersla á notkun upplýsingatækni.
    ÞÝSK1ÞA05 (Fyrsti áfangi)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • • völdum grundvallarþáttum málkerfisins
    • • menningu, samskiptavenjum og siðum þýskumælandi þjóða
    • • uppbyggingu texta og muninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt
    • • lesa og greina texta sem innihalda algengan orðaforða
    • • taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir
    • • tjá sig á einfaldan hátt með því að beita orðaforða, málvenjum og framburði
    • • skrifa stuttan, einfaldan texta um þekkt efni með viðeigandi málfari
    • • fara eftir grundvallarreglum um ritað mál
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skilja meginatriði margvíslegra texta og greina einfaldar upplýsingar
    • • skilja talað mál um kunnugleg efni
    • • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt
    • • skrifa samantekt á tilteknu efni eða skrifa um áhugamál og sitt nánasta umhverfi
    • • takast á við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
    • • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálinu
    Í lok áfangans er skriflegt og munnlegt próf úr efni áfangans sem gildir á móti vinnu og ástundun nemandans á önninni.