Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415355935.52

    Fjölbreytni lífheimsins
    LÍFF1LR05(11)
    None
    líffræði
    lífríkið
    for inspection
    1
    5
    11
    Notkun greiningarlykla kynnt og æfð við greiningar á tegundum eða hópium úr mismunandi plöntu- og dýrafylkingum, ýmist úti í náttúrunni eða með undanfarandi plöntu- og dýrasöfnun. Meðal hópa lífvera, sem koma til greina, eru: Háplöntur, sveppir, þörungar, fuglar, fiskar, skordýr, krabbadýr, lindýr og liðormar en þetta fer nokkuð eftir þekkingarsviði kennara. Lögð er áhersla á að kynna lífríki einstakra búsvæða, svo sem ýmissa gróðurlenda, jarðvegs og votlendis (t.d. ferskvatns og fjöru).
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Nemandi læri að þekkja algengar, íslenskar plöntu- og dýrategundir
    • Hvar þessar tegundir er helst að finna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota helstu hjálpartæki við tegundagreiningar, svo sem greiningarlykla, söfnunartæki, víðsjár og sjónauka
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Auka við þekkingu sína og hæfni í tegundagreiningum. ...sem er metið með... markvissri notkun á greiningarlyklum
    Námsmat getur m.a. byggst á verklegu greiningarprófi en einnig kemur til álita að meta einungis mætingu og virkni. Leiðsagnarmat eftir því sem við verður komið.