Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418222890.65

    Eðlisfræði grunnáfangi fyrir náttúrufræðabraut
    EÐLI2EN05
    37
    eðlisfræði
    Eðlisfræði grunnáfangi fyrir náttúrufræðibraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Fjallað er um hreyfifræði í einni vídd, verkan jafnra krafta og lögmál Newtons. Einnig er fjallað um skriðþunga massa og vinnu jafnra krafta, vélræna orku og afl. Loks er fjallað um þrýsting í kyrrstæðum vökva og uppdrif í vökva.
    STÆR3KV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hreyfifræði í einni vídd
    • aflfræði Newtons
    • tengslum skriðþunga og krafta
    • vinnu jafnra krafta og vélrænni orku í einföldum lokuðum kerfum
    • þrýstingi og uppdrifi í kyrrstæðum vökva
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa einföld verkefni og reikninga í hreyfifræði og aflfræði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa einföld verkefni sem fela í sér mælingar og athuganir á hreyfingu hluta og aflfræðilegum fyrirbærum og geta greint frá helstu niðurstöðum athugana sinna í stuttri skýrslu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá