Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418809842.51

    Tölvuteikning
    TÖLT2AC05
    3
    Tölvuteikning AutoCad
    AutoCad
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum fer fram kynning á notkun forritsins AutoCAD sem notað er við tölvuteikningu. Lögð er áhersla á að efla skilning þátttakenda á rýmum út frá tvívíðum teikningum. Þátttakendur læra grunnskipanir AutoCAD með æfingum og kynnast undirstöðu tölvuteikningar í teiknikerfum. Þátttakendur þjálfast í að teikna flatarmyndir í tölvu eftir hefðbundnum stöðlum og teiknireglum. Auk þess læra þeir að mæla upp hluti og teikna síðan á grundvelli hefðbundinna staðla og teiknireglna. Lögð er áhersla á þjálfun í lestri teikninga og mælikvarða, að nemandinn vinni eftir málum og teiknireglum, notkun lagskiptinga, línugerða og merkinga sem og skölun teikninga og uppsetningu teikninga. Þá læra nemendur að setja saman og ganga frá teikningum vel framsettum til útprentunar og vistunar. Námið er hagnýtt, einkum við hönnun og fagteikningu og byggir á verklegum æfingum sem þáttakendur leysa sjálfir með aðstoð kennara.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnskipunum í AutoCad
    • gerð og frágangi einfaldra tvívíðra teikninga á grundvelli textalýsinga, skoðunar og uppmælinga á rýmum og hlutum
    • frágangi einfaldra teikninga með tilliti til staðla og teiknireglna
    • mismunandi mælikvörðum, mátkerfum, hugtakanotkun og notkun helstu mælitækja
    • tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
    • lestri teikninga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita þeim skipunum sem hann hefur lært
    • nota flóknari aðgerðir og leiðir til að auka afköst
    • málsetja einfalda vinnuteikningu eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
    • lesa einfaldar vinnuteikningar með fallmyndun
    • lesa hornréttar fallmyndir ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna teikningar tilbúnar til útprentunar og þekki prentmöguleika samkvæmt gildandi stöðlum og reglum ...sem er metið með... mati á raunhæfum verkefnum
    • færa teikningar eða myndir milli forrita og vinna með þær í samræmi við teiknireglur
    • geta nýtt sér skölun teikninga
    • geta nýtt sér teiknikunnáttu sína ...sem er metið með... raunhæfum verkefnum
    • sýna þekkingu og færni til að skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
    • takast á við áframhaldandi nám í teiknifræðum
    Getur byggst á verkefnavinnu, (símati ) skyndiprófum eða sambærilegum æfingum sem ásamt lokaprófi/lokaverkefni gefa heildarniðurstöðu námsmats