Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1419860410.15

    Grunnteikning
    GRUN1AU05
    5
    Grunnteikning
    Almenn undirstaða
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo megin efnisþætti. Í fyrsta efnisþætti er fjallað um fallmyndun og þeim seinni ásmyndun og fríhendisteikningu. Í áfanganum öðlast nemendur færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda. Nemendur fá þjálfun í lestri teikninga og í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi teikniaðferðum, s.s. fríhendisteikningu og fallmyndun
    • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
    • meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda
    • tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
    • lestri teikninga
    • uppsetningu teikninga á vinnublað og áritun.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa hornréttar fallmyndir ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum
    • teikna einfaldar vinnuteikningar með fallmyndun og nota við það viðeigandi teikniáhöld
    • málsetja einfaldar vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
    • málsetja einfaldar vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
    • lesa og skilja einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna þekkingu og færni til að skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt ...sem er metið með... verkefnum og hlutaprófum
    • fara í áframhaldandi nám í teiknifræðum ...sem er metið með... verkefnum og hlutaprófum
    • nýta sér kunnáttu í starfi ...sem er metið með... verkefnum og hlutaprófum
    Áfanginn er símatsáfangi. Lokaeinkunn er fengin með verkefnaskilum og hlutaprófum yfir önnina.