Flatarteikning, fallmyndun, yfirborðsútflatning og fríhendisteikning
Samþykkt af skóla
2
5
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist áframhaldandi almenna þekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í þrjá megin þætti: Flatarteikningu, fallmyndun og yfirborðsútflatninga og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist frekari færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, þjálfist í lestri og gerð vinnu-teikninga, fríhendisrissteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun teikni- og mæliáhalda
upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
gerð einfaldra tvívíðra fríhendisteikninga
gildi frumforma fyrir teikningu og mótun viðfangsefna faggreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
lestri teikninga
teikningu yfirborðsútflatningsmynda af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og teikna fallmyndir af reglulegum rúmfræðilegum frumformum og sneiðskorningum með sérstöku tilliti til greiningar og myndunar raunstærða á línum og flötum
skipuleggja, árita og ganga frá tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
setja út og teikna flatarfræðileg form og tvívíðar vinnufyrirmyndir
efla formskyn sitt
hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
mæla upp einfaldan hlut og yfirfært í annan mælikvarða á hornréttri fallmynd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fá almennan undirbúning fyrir fagbundið teikninám og annað fagnám, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
hafa gott vald á skipulagningu vinnublaðs, áritun með teikniskrift og frágangi flatarteikninga þannig að vinna megi eftir þeim
geta teiknað fríhendis tvívíðar útlínumyndir eftir einföldum fyrirmyndum sem horft er á úr fjarlægð á vinnublöð, án annarra mæli- og hjálpartækja en sjón- og blýantsmælingar
nýta kunnáttu í starfi
fara í áframhaldandi nám í teiknifræðum
Mælt er með því að lokamat byggi á verkefnavinnu og skyndiprófum u.þ.b. 40%
og lokaprófi 60%. Miðað er við að lokanámsmat byggi að stofni til á sjálfstæðri
og óháðri vinnu nemenda. Jafna má vægið milli frammistöðu á önn og
lokaprófs í þeim tilvikum þar sem gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðis í
námsvinnu nemenda en gert er að jafnaði.