Áfanginn miðar að því að nemendur verði læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í að tileinka sér aukinn orðaforða. Nemendur skulu geta tjáð hugsun sína varðandi ólík efni í ræðu og riti og beitt rökum. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
Nemendur vinna viðameiri verkefni sem lúta að mismunandi menningu og siðum í löndum þar sem enska er töluð sem móðurmál eða ríkismál og bera saman við Ísland og íslenska menningu.
Áfram verður unnið með undirstöðuatriði enskrar málfræði og málnotkunar, unnið verður með ýmiskonar efni frá mismunandi menningarheimum og með fréttatengt efni sem snertir málefni líðandi stundar.
einkunnin 6 (B) í ensku við lok grunnskóla
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál í samanburði við Ísland og íslenska menningu
orðaforða í tengslum við efni áfangans
helstu málfræðiatriðum í enskri tungu
mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fjölbreyttar gerðir texta í formi bókmennta, texta almenns eðlis og aðra texta sem tengjast efni áfangans
tjá sig með skýrum hætti í ræðu eða riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
beita viðeigandi hjálpargögnum við lestur og ritun ýmissa texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
tileinka sér efni/inntak margvíslegra texta og geta hagnýtt sér þá á mismunandi hátt
tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá