2. áfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut, efnatengi, hraði og orka
EFNA2EH05
33
efnafræði
2. áfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut, efnatengi, hraði og orka
Samþykkt af skóla
2
5
Í þessum áfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byrjað er að byggja ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: orkuhugtakið almennt og í tengslum við efnahvörf, efnatengi og Lewis byggingu, fjallað verður um hraða efnahvarfa og hraðalögmálið, flokka lífrænna efna og nafnakerfið..
EFNA2AE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugmyndum um orku og lögmálinu um varðveislu orkunnar
hvarfvarma
efnatengi
hraðafræði efnahvarfa og hvarfhraða
flokkun lífrænna efna og nafnakerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna stöðu- og hreyfiorku út frá mælistærðum, vinna með umbreytingu orku milli orkuforma og nota orku með efnajöfnum
finna hraðalögmál út frá tilraunaniðurstöðu
greina flokka lífrænna efna og gefa efnunum nöfn
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
nota gögn eins og lotukerfi, jónatöflur og aðrar töflur við lausn verkefna
lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra raungreina
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá