Meginefni áfangans er algebra, föll og mengi.
Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru:
Hornaföll: Sinus, cosínus og tangens.
Bókstafareikningur: Veldi og rætur. Jöfnur af öðru stigi. Könnun annars stigs ferla (fleygboga) í hnitakerfi. Meðferð algebrubrota. Margliðudeiling. Ójöfnur af fyrsta og öðru stigi.
Föll: Fallhugtakið innleitt og nokkur algeng föll kynnt, t.d. tölugildisfallið.
Mengi: Grunnhugtök mengjafræði, s.s. stök, hlutmengi, sammengi og Vennmyndir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum mengjareikningi og Vennmyndum.
deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum.
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi.
jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum.
veldum, rótum og veldareglum.
margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra.
beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa.
fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi.
rúmfræði í fleti og í hnitakerfi, einslögun og hornafræði.
að kunna að beita hornaföllum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota veldi og rætur, helstu veldareglur og vinna með brotna veldisvísa
finna núllstöðvar, samhverfuás og útgildi fleygboga, teikna þá í hnitakefi og finna skurðpunkta þeirra við beinar línur
leysa annars stigs jöfnur með ferningsrótaraðferð, þáttun og með lausnarformúlu, leysa rótarjöfnur og að nota breytuskipti til að leysa dulbúnar annars stigsjöfnur
leysa ójöfnur af fyrsta og öðru stigi, m.a. með hjálp formerkjatöflu
deila með margliðudeilingu og að nota hana til að þátta flóknar margliður
lengja, stytta, deila, margfalda og leggja saman algebrubrot
vinna með fallhugtakið, s.s. að ákvarða hvort vörpun er fall, finna formengi og varpmengi og teikna gröf falla
nota einfaldan mengjareikning og Vennmyndir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega og geta rætt þær og útskýrt fyrir öðrum
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
beita gagnrýninni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni út frá þekkingu á lausnum svipaðra verkefna
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.