lesskilningur, málfræði, stig b1 í evrópska tungumálarammanum
Samþykkt af skóla
2
5
Nemendur lesa fjölbreytta texta um fréttatengd efni, danska menntakerfið og bókmenntatexta. Áhersla lögð á virkan og hagnýtan orðaforða. Farið verður í flóknari atriði málfræði og málnotkunar. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna. Nú er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur leggi fram verkefnamöppur í lok áfangans. Nemendur þjálfast í samræðutækni og að tjá afstöðu sína og skoðanir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
dönsku þjóðlífi og menningu og hvernig danskan opnar aðgang að norræna menningarsvæðinu (menntun og atvinnulífi)
hvað er sameiginlegt og hvað er ólíkt með hinum norrænu þjóðum
orðaforða til undirbúnings áframhaldandi náms á Norðurlöndum
uppsetningu og skipulagi ritaðs máls
mikilvægi þess að beita mismunandi lestraraðferðum eftir tilgangi lesturs (dæmi: er verið að lesa nákvæmar leiðbeiningr eða auglýsingar í kvikmyndahúsi)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og algengustu orðasambönd
lesa fjölbreytta texta um ólík efni og beita þeim lestraraðferðum sem henta hverju sinni
tjá sig munnlega skýrt og með nokkru öryggi um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita texta af ólíkum gerðum (t.d. starfsumsókn, umfjöllun um skáldsögu eða kvikmynd, sendibréf o.s. frv.) og fylgja helstu málnotkunarreglum
beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
túlka mismunandi bókmenntatexta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni
skilja inntak erinda og annars flóknara efnis sem hann hefur kynnt sér
afla sér upplýsinga úr margvíslegum rituðum textum svo sem blaðagreinum, bókmennta- eða fræðitextum
draga eigin ályktanir af textum og setja þær fram bæði munnlega og skriflega
taka þátt í daglegum samræðum við fólk sem hefur dönsku að móðurmáli
skiptast á skoðunum og tjá hugmyndir sínar á áheyrilegan hátt
halda undirbúnar kynningar blaðalaust fyrir áheyrendur
skrifa læsilega og málfræðilega rétta texta um valið efni á persónulegan og skapandi hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.