Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum ýmsa merka viðburði í heimssögunni, Íslandssögunni og sögu sveitarfélaganna á Tröllaskaga sem og þær persónur sem sett hafa svip sinn á söguna. Þetta er gert með ýmsum hætti t.d. lestri ýmissa rita, með því að horfa á heimildamyndir og kvikmyndir, skoða ýmiskonar efni á netinu, fara á listsýningar og söfn og fleira. Nemendur vinna ýmiskonar verkefni og kynningar sem tengjast efninu auk þess að sækja söfn og sýningar.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum merkum viðburðum í sögu heimsins, Íslandssögunni og úr nágrenni sínu
hlutverki ýmissa þekktra persóna í sögunni
mikilvægi þess að þekkja til sögunnar
gildi lista til að sýna og túlka söguna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér ýmsa miðla til að kynna sér söguna: t.d. kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internetið
leita samhengis og tengsla milli tímabila sögunnar sem og milli svæða heimsins
tjá skoðanir sínar munnlega og í texta
sækja listviðburði og söfn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir gildi og afstæði sögulegra frásagna og skýringa
njóta betur kvikmynda, sjónvarpsþátta og listsýninga með sögulegum skírskotunum
geta tekið þátt í umræðum um almenn söguleg málefni
fá lifandi áhuga á sögu heimsins
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.