Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423556733.81

    Skyndihjálp - sláturiðn
    SLÁT1SK03
    11
    Slátrari
    Skyndihjálp - sláturiðn
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Markmið áfangans er að nemendur fái undirstöðuþekkingu í markvissum vinnubrögðum hvað varðar vinnuslys, hópslys og náttúruhamfamfarir. Kennsla í skyndihjálp fer fram með bóklegum og verklegum æfingum. Áhersla er á almenna skyndihjálp við slasaða og sjúka.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Algengustu slysum sem verða á vinnustað með áherslu á frumframleiðslufyrirtæki líkt og sláturhús.
    • Mikilvægi þess að kunna og geta beitt þeim handtökum sem þarf við fyrstu hjálp og geti veitt markvissa hjálp á vettvangi.
    • Mikilvægi helstu viðbragða og ráðstafana við slysum sem verða á vinnustað.
    • Mikilvægi forvarna hvað varðar vinnuslys.
    • Þeim hættum sem geta stafað af efnum, t.d klór og öðrum sambærilegum efnum og gert varúðarráðstafanir gagnvart þeim.
    • Staðsetningu sjúkrakassa og kunni að nota innihald hans við fyrstu hjálp.
    • Viðbrögðum við brunavörnum og meðferð mismunandi slökkvitækja.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita markvissri fyrstu hjálp við þeim slysum sem verða á vinnustað með áherslu á sláturhús.
    • Bregðast við með markvissum vinnubrögðum ef eldur kemur upp á vinnustað með áherslu á sláturhús.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta beitt undirstöðuþekkingu sinni í fyrstu hjálp og markvissum vinnubrögðum ef slys verða á vinnustað sem og ef um hópslys eða slys vegna náttúruhamfara á sér stað.