Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423645921.12

    Lífeðlisleg og hugræn sálfræði
    SÁLF2LH05
    23
    sálfræði
    Lífeðlisleg og hugræn sálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu taugakerfisins og starfsemi þess, einkum heila og taugafruma. Farið er yfir tengsl hormóna við hegðun. Fjallað er um skynfærin 5, uppbyggingu þeirra og virkni. Farið er yfir skynferlið frá því að skynfæri áreitist þar til heilinn hefur unnið úr skilaboðunum. Farið er í hugræna sálfræði og þá sérstaklega minniskerfin þrjú og virkni þeirra. Einnig er fjallað um svefn og drauma.
    Inngangur að félagsvísindum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunneiningum taugakerfisins og virkni þess.
    • tengslum heila- og hormónakerfis við hegðun og tilfinningar.
    • áhrifum lyfja á taugakerfið.
    • gerð skynfæranna, virkni þeirra og úrvinnslu skynáreita.
    • virkni og uppbyggingu minnisins.
    • helstu kenningum um svefn og drauma.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hugtökum lífeðlislegrar sálfræði í ræðu og riti.
    • beita hugtökum hugrænnar sálfræði í ræðu og riti.
    • miðla þekkingu sinni á taugakerfinu, skynjun, minni, svefni og draumum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • afla sér upplýsinga um efnisþætti áfangans, greina aðalatriði þeirra og miðla þeim.
    • útskýra skynferli skynfæra mannsins.
    • útskýra starfsemi taugakerfisins.
    • útskýra uppbyggingu minnis og minnisfestingu.
    • taka rökstudda og sjálfstæða afstöðu til námsefnisns.