Áfanginn er bæði fræðilegur og verklegur þar sem aðaláhersla er á og mest er unnið með neðangreind atriði.
Farið er yfir mikilvægi upphitunar fyrir líkamlega þjálfun og unnið með æfingar og leiki sem henta fyrir líkams- og heilsurækt eða mismunandi íþróttagreinar. Farið er yfir það helsta sem á sér stað í líkamanum við upphitun og þá kosti sem góð upphitun hefur í för með sér. Í áfanganum er einnig fjallað um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp og viðhalda þoli. Þá verða nemendum kynntar aðferðir til mælinga á þoli.
Ofangreind atriði verður að mestu unnið með verklega og þau kynnt fyrir nemendum með verklegum æfingum, en jafnframt verður fræðileg innlögn og nemendur fá fræðileg verkefni tengd umræddum atriðum sem þeir þurfa að standa skil á.
Í verklegu tímunum verður fjölbreytnin höfð að leiðarljósi – nemendur glíma við fjölbreytt verkefni sem á einn eða annan hátt tengjast þeim þáttum sem að ofan getur. Í einhverjum verklegum tímum býðst nemendum að velja sér viðfangsefni eftir áhugasviðum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi upphitunar fyrir árangur í íþróttum
helstu áhrifum upphitunar á líkamann
þoli og mismunandi þolþjálfun, bæði loftháðri og loftfirrtri
hvernig skuli byggja upp eigið líkamsþol
mikilvægi þolþjálfunar fyrir hjarta og blóðrásarkerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta eigið líkamsástand
útbúa æfingaáætlun sem miðast við að auka grunnþol sitt
taka þátt í sérhæfðri þolþjálfun íþróttagreinar
nota góða vinnutækni og vinnustellingar
efla á markvissan og einstaklingsbundinn hátt líkamshreysti og þrek
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta grunnþol
útfæra fjölbreytta upphitun fyrir líkams- og heilsurækt
framkvæma eigin þjálfáætlun sem miðar að því að auka líkamlegt þol
nýta sér upplýsingatækni við alhliða líkams- og heilsurækt og mat á eigin heilsu
Byggir á ástundun, verkefnaskilum og fræðilegum og verklegum lokaverkefnum.