Áfanginn er bæði bóklegur ( fræðilegur ) og verklegur.
Í áfanganum er fjallað um næringu og mataræði og hvað felst í hollri og góðri næringu með tilliti til íþrótta og daglegrar fæðu. Fjallað verður um skaðleg áhrif tóbaks, áfengis og annarra vímuefna á líkamann.
Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti tengda skipulagi þjálfunar. Nemendur vinna eigin þjálfunaráætlun undir handleiðslu kennara, auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif þjálfunar. Komið verður inn á helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar, svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Fjallað er um gildi reglulegrar og skipulagðrar líkamsþjálfunar og nemendum gerð grein fyrir ábyrgð á eigin líkama. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og fá að kynnast möguleikum umhverfisins til líkams- og heilsuræktar. Nemendur verða hvattir til að nýta sér tölvu- og upplýsingatækni við skrásetningu upplýsinga og vinnu að eigin áætlanagerð.
Þá verður farið nánar í aðalatriði undanfarandi áfanga, þ.e. snerpu og samhæfingu og unnið með þá þætti bæði fræðilega og verklega.
Í verklegu tímunum verður fjölbreytnin höfð að leiðarljósi – nemendur glíma við fjölbreytt verkefni sem á einn eða annan hátt tengjast þeim þáttum sem að ofan getur. Í einhverjum verklegum tímum býðst nemendum að vinna eftir eigin áætlunum og/eða velja sér viðfangsefni eftir áhugasviðum.
ÍÞRÓ1UÞ02 , ÍÞRÓ2SL03 og ÍÞRÓ1SS02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flokkun næringarefna í fæðunni
mismunandi áhrif næringarefna og mataræðis á líkamann
taki þátt í umræðu um skaðleg áhrif áfengis, tóbaks og annarra vímuefna á líkamann
möguleikum til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta eigið líkamsástand
klæða sig til íþróttaiðkunar eftir aðstæðum, úti sem inni
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu
taka þátt í alhliða líkams- og heilsurækt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni, stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta grunnþol
taka þátt í fjölbreyttri líkams- og heilsurækt jafnt úti sem inni
nýta sér upplýsingatækni við alhliða líkams- og heilsurækt og mat á eigin heilsu
nýta eigin þekkingu til að framkvæma eigin þjálfáætlun með það að markmiði að auka líkamlegt atgervi sitt
Byggir á ástundun, verkefnaskilum, verklegu lokaverkefni og skriflegu lokaprófi