Í þessum áfanga er fjallað um ritgerðarskrif, goðafræði og málsögu. Ritgerðarskrif: Nemendur þjálfast í öflun og úrvinnslu heimilda um sérhæfð efni og nýta sér upplýsingatækni við verkefnavinnu. Goðafræði: Nemendur fræðast um goðafræði og hugmyndaheim norrænna manna til forna. Málsaga: Nemendur kynnast uppruna, sögu og þróun íslenskunnar. Nemendur lesa einnig bókmenntaverk sem tengist viðfangsefnum áfangans og vinna með það á fjölbreyttan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu íslensku frá upphafi til nútímans, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál
mikilvægi þess að ástunda vönduð vinnubrögð við úrvinnslu og meðferð heimilda
hugmyndaheimi norrænna manna til forna, norrænum goðum og helstu sögum af þeim
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt
nota fræðilegt efni við gerð heimildaritgerða og verkefna
nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun
tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina og túlka bókmenntatexta og færa rök fyrir skoðunum sínum munnlega og skriflega
leggja mat á heimildir og vinna úr þeim með skipulögðum hætti
skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli
vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá