Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423812230.55

    Íslands og mannkynssaga 1800 til 2000
    SAGA2II05
    22
    saga
    Íslands- og mannkynssaga II
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Napoleonstíminn, upphaf Bandaríkjanna og byltingar á 19.öld, einnig sjálfstæðisbarátta Íslendinga á 19. og 20. öld. Skoðað hvernig vestrænt lýðræði varð til og þróaðist. Upphaf nútíma hagkerfis og atvinnuhátta bæði hér á landi og erlendis. Uppruni stéttarfélaga, almannatrygginga og þróun. Heimskreppan mikla, öfgahreyfingar er náðu vinsældum í kjölfarið, heimsstyrjaldir og kalt stríð. Unnið er með sögulegt efni, dregið af því ályktanir og afrakstrinum miðlað til annarra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum þáttum í sögu Vesturlanda frá 1800 til nútíðar
    • helstu breytingum í atvinnu og félagsmálum á Vesturlöndum á tímabilinu, ásamt þeim kostum og erfiðleikum er því fylgdu
    • sókn Íslendinga til aukinnar sjálfsstjórnar og aðdraganda og upphafi nútíma samfélags á Íslandi
    • þróun lýðræðis á 19. og 20. öld, því að lýðræði er ekki sjálfgefinn hlutur og að ýmislegt getur ógnað því
    • helstu styrjaldarátökum á tímabilinu, orsökum þeirra og afleiðingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með ólíkar tegundir sögulegra heimilda og greina þær
    • draga eigin ályktanir af sögulegum heimildum
    • endursegja og skapa sína sína eigin sögulegu mynd út frá heimildum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla eigin sögulegu þekkingu til annarra
    • skrá sögulegar heimildir samkvæmt viðurkenndu skráningarkerfi
    • meta og skilja sögulegt efni og umfjöllun