Nýlendukapphlaup og áhrif þess, ástæður fyrri heimsstyrjaldar og afleiðingar. Andstæður millistríðsáranna, öfgahreyfingar og áhrif þeirra. Heimurinn í klóm risavelda, kalt stríð með heitu ívafi og áhrif þess bæði á Íslandi og erlendis. Valin málefni líðandi stundar skoðuð í sögulegu ljósi. Heimildir um þessa tíma skoðaðar, ræddar og unnið úr þeim. Nemendur forma eigið álit byggt á gagnrýnni hugsun og greiningu og koma því á framfæri.
Nemandinn þarf að hafa lokið námi í SAGA2II05 Íslands og mannkynssaga 1800 til 2000.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stöðu heimsmála við upphaf fyrri heimsstyrjaldar, stöðu stórvelda, framgang nýlendustefnu og stjórnmálahræringar
fyrri heimsstyrjöld með hliðsjón af orsökum, hernaði og hlutskipti hermanna og óbreyttra borgara
breytingu á stöðu ríkja, þjóða og landaskipan í kjölfar friðarsamningar
þverstæðum millistríðsáranna, góðæri, kreppu og öfgastefnum
atburðarás og áhrifum kalda stríðsin, bæði erlendis og hér heima
helstu hugtökum er tengjast kalda stríðinu og umfjöllun um það
menningarlegum, viðskiptalegum og félagslegum áhrifum kalda stríðisins á Íslandi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með ólíkar sögulegar heimildir og greina á gagnrýninn hátt
afla sér heimilda og vinna eigið verk upp úr þeim
koma niðurstöðum sínum á framfæri og vísa til heimilda
kanna málefni líðandi stundar og greina sögulegar rætur þeira og ferli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
forma rökstudda frásögn út frá sögulegum heimildum
miðla sögulegri þekkingu sinni og ræða söguleg málefni
skapa sér mynd af sögulegum fyrirbærum 20. aldar út frá eigin þekkingu á tímabilinu