Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423833892.31

    Lestur og ritun
    ÍSLE1RO03
    40
    íslenska
    lestur, málnotkun, orðaforði, ritun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    AV
    Stefnt er að því að efla sjálfstraust þeirra og trú á eigin málfærni í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur bæti lestrartækni, lestrarhraða, lesskilning sinn og öðlist úthald við lestur.Lesnir verða textar af ýmsu tagi, bæði nytjatextar og bókmenntatextar og nemendur þjálfast í að greina aðalatriði þeirra. Ennfremur fá þeir þjálfun í ýmiss konar ritun þar sem reynir á sköpunarhæfni og frumkvæði. Nemendur auka orðaforða sinn í ræðu og riti og nýta sér hjálpargögn og heimildir til að bæta og lagfæra eigin texta. Algengasta myndmál og stílbrögð rifjuð upp. Nemendur vinna og kynna verkefni sín ýmist einir og/eða með öðrum.
    Áfanginn er ætlaður nemendum sem ekki hafa lokið grunnskóla með fullnægjandi árangri að mati skólans.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að búa að góðri lestrarfærni, t.d. góðum lestrarhraða, lesskilningi og úthaldi við lestur
    • mismunandi lestraraðferðum, t.d. hraðlestri, nákvæmnislestri og leitarlestri
    • nokkrum tegundum bókmennta- og nytjatexta, s.s. smásögum, blaða- og tímaritsgreinum
    • uppbyggingu ólíkra texta
    • orðaforða sem nýtist í ræðu og riti
    • mikilvægum atriðum sem einkenna góða framsögn og umræður
    • notkun hjálpargagna
    • mikilvægi þess að geta heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
    • skilja algengt líkingamál og orðatiltæki
    • nota mismunandi lestraraðferðir við ólíka texta
    • kynna og lýsa munnlega ýmiss konar efni
    • vinna fjölbreytt verkefni þar sem reynir m.a. á sköpun og frumkvæði
    • nota yfirlestrarforrit og orðabækur til að lagfæra eigin texta
    • taka aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
    • leita upplýsinga úr heimildum og nýta á viðeigandi hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • semja stutta texta af ýmsu tagi með viðeigandi málfari
    • afla sér upplýsinga í ýmsum nytjatextum, s.s. blaða- og tímaritsgreinum
    • auka leshraða og dýpka lesskilning sinn
    • styrkja eigin mál- og ritfærni
    • túlka texta þótt merkingin liggi ekki á yfirborðinu
    • vinna skapandi verkefni, t.d. í tengslum við vinnu með texta
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.