Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423840469.91

    Bókmenntir síðari alda, skrif og skapandi hugsun
    ÍSLE3BS05
    46
    íslenska
    bókmenntir síðari alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um bókmenntir og bókmenntasögu 19. - 21. aldar. Bókmenntastefnur tímabilsins verða skoðaðar vandlega og lesnir fjölbreyttir textar í tengslum við þær. Nemendur þjálfast í bókmenntafræðilegri túlkun og greiningu og fá tækifæri til að tjá sig um efnið á fjölbreyttan og skapandi hátt. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritgerðarsmíð.
    ÍSLE3BF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • öllum helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum síðari alda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
    • skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið
    • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • lesa sér til gagns og gamans ýmsar gerðir ritaðs máls
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum
    • beita málinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður
    • tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum og umfjöllun
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá